Halló allir Það er búið að vera rosalega gott hérna í Montpellier og ég er sko búin að gera ýmislegt síðan ég kom hingað. Ég er búin að stofna franskan bankareikning, fara í Ikea og kaupa fallega hluti í herbergið mitt, kaupa tram kort, taka stöðupróf í skólanum, fara út að borða í fyrsta skipti á franskan veitingastað, fara í sightseeing tour um borgina með nýja þýska vini mínum, fara á djammið með Belganum og vinum hans og svo er ég líka búin að labba heilmikið. Það er svo skrýtið að vera allt í einu farin að hreyfa sig svona mikið því ég bókstaflega labba út um allt, ég held ég labbi örugglega svona 4-5 km á dag, enda finn ég líka alveg hvað ég þarf að borða meira
En vá hvað það er gaman að labba svona, maður fær einhvern veginn svo góða tengingu við umhverfið, það er allavega mun betra en að vera í bíl.
Á miðvikudaginn fór ég sem sagt snemma um morguninn og stofnaði þennan blessaða bankareikning, það er nefnilega þannig að maður fær styrk frá ríkinu ef maður er nemi í Frakklandi og á franskan bankareikning og leigusamning og svona. Mér fannst þess vegna um að gera að stofna bara einn svona bankareikning. Ég skal sko segja ykkur það að það er vesen að fara í franska banka, maður þarf að bíða ógeðslega lengi og svo verður maður að hafa svo mörg skjöl með sér til að geta fengið einhverja þjónustu, ég var samt ágætlega undirbúin fyrir það þannig að ég fékk alveg þjónustu. Svo talar bankastarfsfólkið enga ensku og ég verð að viðurkenna það að ég er ekki alveg með bankafrönskuna á hreinu, ég samt skildi flest allt sem hún sagði. Ég vona bara að ég hafi ekki skrifað undir neitt slæmt
hehe. Ég fæ franskt debetkort eftir nokkra daga
Mér finnst það geðveikt
Núna þarf ég bara að fara með enn fleiri skjöl á annan stað og sækja um þennan styrk. En já ég var frekar stolt af mér fyrir að hafa getað stofnað franskan bankareikning ein og á minni eigin frönsku, hehe 
Á miðvikudaginn fór ég líka í Ikea, en það er frekar langt í burtu frá miðbænum þannig að ég tók tram þangað og svo kom í ljós að búðin sjálf er frekar langt frá stoppistöðinni þannig að ég þurfti að labba frekar lengi. Ég keypti mér alveg helling í Ikea og ég verð bara að taka það fram að allir hlutirnir sem ég keypti voru bleikir
hehe bleikur er nottla bara besti litur í heimi
En já ég var frekar vitlaus þarna því ég keypti mér alltof mikið og hugsaði svo ekkert út í það að ég þyrfti svo að dröslast með þetta alla leið heim. Heimleiðin var því frekar erfið og ég tel mig heppna að hendurnar hafi ekki dottið af mér
hehe. Ég held ég sé komin með þvílíka vöðva í hendurnar því ég er alltaf að labba um með svo marga og þunga poka 
Um kvöldið á miðvikudaginn bauð hann Ruben (belgíski herbergisfélaginn) mér að djamma með sér og vinum sínum, það voru nefnilega nokkrir að koma í heimsókn til hans og svo var planið að fara á einhvern klúbb saman. Auðvitað þáði ég það boð því ég var sko í alvörunni að verða geðveik á því að vera svona mikið ein. Ég er nefnilega búin að gera allt ein síðustu daga, það var orðið svolítið overwhelming og tilhugsunin um að verja öðru kvöldi inni í herberginu fyrir framan tölvuna var ekki lokkandi
Ekki taka þessu illa samt, það er alltaf jafn gaman að tala við ykkur á msn
Það var ekkert smá gaman að hanga með Ruben og vinum hans, þetta var vægast sagt alþjóðlegur hópur, einn þýskur strákur (Stefan), kínverskur strákur (Mario), rússnesk stelpa (Katja) og svo nottla Ruben. Þau voru öll rosalega næs og við skemmtum okkur vel saman, við byrjuðum fyrst inni hjá Ruben og fórum svo á klúbb sem heitir Macadam og eftir það á annan sem heitir Rockstar. Það er svo skrýtið klúbbarnir hérna loka flestir um 1 eða 2 leytið, við vorum alveg í vandræðum með að finna einhvern sem var opinn lengur, en það tókst á endanum
Ruben og Katja fóru samt heim frekar snemma en ég var aðeins lengur, ég nennti engan veginn heim strax . Þýski strákurinn fylgdi mér svo heim um 3 leytið. Það er víst ekki alveg óhætt fyrir stelpur að labba einar heim hérna, allavega ekki á þröngu götunum.
Í gær tók ég svo þetta stöðupróf sem var nú miður skemmtilegt. Munnlega prófið var allt í lagi, prófesorinn sem dæmdi í því var líka mjög næs, hann hafði oft komið til Íslands og þekkti meira að segja Gerard Lemarquis frönsku kennarann minn í HÍ Lítill heimur
Skriflega prófið var síðan frekar leiðinlegt, það var frekar stór málfræðikafli og svo þurftum við líka að skrifa tvær ritgerðir
Sjit hvað það er erfitt að skrifa rökfærslu ritgerð á frönsku. Ég þurfti sem sagt annars vegar að skrifa um reynslu mína af frönsku (sú ritgerð var ágæt) og hins vegar þurfti ég að skrifa um hvort sjónvarpsefni væri til afþreyingar eða til upplýsingar ( það efni var hundleiðinlegt, allavega á frönsku).
Eftir prófið tók ég svo tram heim og varð vitni að fyrstu mótmælunum hérna í Frakklandi Hehe frakkar eru sko óðir mótmælendur !
Það sem sagt voru frekar mikil mótmæli á Place de la Comedie og alveg hellingur af fólki þar með skilti og svona, nokkrum götum var meira að segja lokað og tramið komst ekkert áfram. Ég þurfti þvi að fara út að einhvers staðar in the middle of nowhere, ég vissi ekkert hvar ég var
En sem betur far var ein sænsk stelpa þarna sem var líka í prófinu og við hjálpuðumst að við að komast að aðaltorginu
Mér fannst þetta svo fyndið eitthvað því ég er náttúrulega engan veginn vön mótmælagöngum á Íslandi en hérna er þetta næstum því daglegt brauð. Það er meira að segja heil nefnd í háskólanum mínum sem sér um að taka á móti tillögum að mótmælum og petitions og svona. Ég fíla þetta samt alveg í botn, mér finnst þetta ýkt gott hjá Frökkunum, fólk á að lata til sín taka ef það er ekki ánægt með eitthvað. Viva la France! 
Um kvöldið voru ég og Stefan svo búin að skipuleggja rendez-vous því hann ætlaði að sýna mér um borgina. Ég var ekkert smá ánægð með þann túr því ég var nottla ekki búin að sjá nema takmarkað af borginni og þorði varla að labba ein eitthvert langt í ótta við að komast ekki heim því allir þessar frönsku litlu götur eru næstum því eins
hehe. Ég tók fullt af myndum þarna og ég skal setja þær inn á facebook um leið og ég get. Hann var ekkert smá góður tour guide og sýndi mér alla gömlu borgina og rómversku vatnsleiðslurnar, sigurbogann og alles
Við fórum síðan út að borða á franskan veitingastað um kvöldið. Namm hvað franskur matur er góður!!!
Ég pantaði mér þriggja rétta máltíð sem kostaði aðeins 16 evrur. Það er sko ekkert verð miðað við það að ég fékk assortement acras (skelfisk) í forrétt, cuisse de canard (andalæri) í aðalrétt og créme caramel í eftirrétt Vá hvað andakjöt er gott! Það er orðið uppáhaldskjötið mitt núna og ég ætla sko að borða nóg af því á meðan ég er hérna, það er líka svo gott verð á því hérna, annað en á Íslandi
En já í þessu city tour okkar þá löbbuðum við mikið um í gamla bænum en hann samanstendur af mörgum pínulitlum götum sem bílar komast ekki einu sinni í gegnum. Þrátt fyrir að þetta sé allt svona lítið þá eru samt kaffihús og veitingastaðir (þar er meira að segja hægt að borða úti) á hverju horni og alls konar litlar búðir út um allt. Það er alveg greinilegt að Frakkar leggja mikið upp úr góðum mat og góðu kaffi. Bottom lænið er bara það að þeir kunna að njóta lífsins
Ég dýrka þessa menningu hérna 
Planið í dag er bara að þvo einhvern þvott og fara kannski á þessa skrifstofu þarna og sækja um styrkinn. Svo ætla ég líka að reyna að finna mér flatbotna opna sko, manni verður svo heitt í lokuðum skóm hérna
Í kvöld er mér svo boðið í mat hjá Stefan og svo held ég að planið sé að fara á Cuba café og dansa salsa með Katja, Ruben og fleirum Það verður sko stuð, sérstaklega þar sem Katja var einu sinni salsa kennari. En já ég er ekkert smá ánægð að vera loksins búin að kynnast einhverju fólki hérna, það gerir þetta svo miklu skemmtilegra allt saman
Hafið það gott og ég sendi ykkur öllum knúsa og kossa frá Frakklandi Sakna ykkar.